SKOR

Eins og keila.
Nema píla.
Like bowling.
But with darts.

Skjár stýrir spilinu Kerfið telur fyrir þig Allskonar leikir 2–12 manns per bás
01.

Bókaðu á netinu

Veldu dagsetningu, tíma og hversu lengi — 55 eða 85 mínútur. Og passaðu að velja rétta dagsetningu. Svo mætirðu bara.

02.

Komdu á Hafnarstræti 18

Starfsmaður tekur á móti ykkur, kemur ykkur af stað og passar að allir séu með Peroni í hönd.

03.

Veljið leik

Hægt er að velja úr fjölda leikja og hvert slot er 55 eða 85 mínútur. Kerfið útskýrir reglurnar.

04.

Kerfið telur

Kerfið segir hver á að gera og telur öll stig fyrir ykkur. Þið þurfið bara að hafa gaman.

Allskonar leikir fyrir alla

LEIKUR 1/8

Chug It

  • Hittu hvar sem er á spjaldið til að drekka af bjórnum — hversu stór sopinn er veltur á því í hvaða reit þú hittir.
  • Hvert lið eða leikmaður byrjar með 185 stig.
  • Sigurvegari er sá sem kemst fyrstur niður í 0. Þú verður að ná nákvæmlega 0 — annars "springurðu" og færð engin stig fyrir þá umferð.
LEIKUR 2/8

Asni

  • Flestir kannast við gamla góða Asna sem var spilaður á körfunum á skólalóðinni.
  • Þú þarft alltaf að toppa eða jafna stigaskor þess sem er á undan þér. Ef þú nærð því ekki færðu staf.
  • Spilarar sem eru ASNI eru úr leik — sigurvegarinn er sá eini sem verður það ekki.
  • Þó þú getir ekki toppað skorið á undan þér er mikilvægt að skora eins vel og hægt er, þar sem næsti spilari þarf að toppa þig.
LEIKUR 3/8

Killer

  • Hverju liði er úthlutað einn reitur á spjaldinu af handahófi.
  • Hittu þinn reit þrisvar til að verða morðingi — þá áttu að hitta í reiti mótspilara og reyna að slá þá úr leik.
  • Barist er til seinasta manns — sá leikmaður sem stendur einn eftir vinnur.
  • Til að flýta fyrir endalokum telja allar pílur tvöfalt frá 6. umferð og þrefalt frá 8. umferð.
LEIKUR 4/8

Shanghai

  • Shanghai er 8 umferðir. Í hverri umferð á að hitta í eina ákveðna tölu — þú safnar eins mörgum stigum og þú nærð hitta (tvöfaldur og þrefaldur telja).
  • Í hverri umferð hækkar talan, svo ekki hafa áhyggjur af slæmri byrjun — næsta umferð er alltaf veigameiri.
  • Sigurvegarinn er sá sem safnar flestum stigum í lok leiks.
  • Ef þú hittir einfalda, tvöfalda og þrefalda reitinn úr öllum þremur pílunum færðu Shanghai — og vinnur leikinn á staðnum.
LEIKUR 5/8

Íslenska Slúðrið

  • Markmið leiksins er að koma kallinum þínum frá byrjunarreit á endareit. Fyrstur til að ná því — eða sá sem er kominn lengst eftir 6 umferðir — vinnur.
  • Píluspjaldið er skipt upp í 6 svæði sem tákna hliðar tenings: 1 = Tvöfaldi hringurinn, 2 = Einfaldi feiti, 3 = Þrefaldi hringurinn, 4 = Einfaldi litli mjói, 5 = Grænn búll, 6 = Rauður búll.
  • Passið ykkur á að lenda á slæmum slúður-reit — það sendir kallinn ykkar til baka þangað sem rauða örin bendir. Gott slúður hendir ykkur lengra áfram!
Íslenska Slúðrið
LEIKUR 6/8

Minesweeper

  • Allir byrja með þrjú líf. Ef þú hittir utan við eða á bombu-reit missirðu líf.
  • Í hverri umferð er tveimur bombu-reitum bætt við á spjaldið — það verður þyngra eftir því sem líður á.
  • Þú safnar öllum stigunum — nema þegar kastað er í bombu-reit.
  • Sá sem er stigahæstur eftir 8 umferðir vinnur. Eða þegar allir aðrir eru dánir.
Minesweeper
LEIKUR 7/8

Eat the Cake

  • Planið er einfalt: hittu í alla númeruðu reitina einu sinni til að vinna leikinn.
  • Fyrir hvern reit sem þú hittir safnarðu stigum — tvöfaldur og þrefaldur telja.
  • Bullseye (grænn og rauður) er alltaf opin fyrir stigasöfnun.
  • Ef enginn spilari nær að loka öllum reitum í 8 umferðum vinnur sá sem er með flest stig.
Eat the Cake
LEIKUR 8/8

Bingo

  • Hverjum leikmanni er úthlutað 9 pílureitum. Mögulegir reitir eru allar tölur milli 1-20.
  • Markmið leiksins er að hitta einusinni í alla reitina þína og fá þannig “BINGO”. Hafið í huga að tvöfaldir og þrefaldir reitir gilda jafnt einföldum í þessum leik, þ.e. Loka aðeins reitnum.
  • Fyrsti leikmaður til að hitta í alla reitina sína fær BINGO og er sigurvegari leiksins.
  • Þegar einhver leikmaður fær BINGO klárast umferðin og leik er svo lokið.
  • Ef enginn leikmaður hefur fengið BINGO að 8 umferðum loknum klárast leikurinn og sá leikmaður sem hefur hitt í flesta sína reiti er útnefndur sigurvegari.
Eat the Cake

Tilbúin að prófa?
Bókið ykkur tíma núna.

Ready to try?
Book your slot now.

Bóka